Tuesday, August 12, 2008
Tuesday, July 15, 2008
Innflutningspartý ;)
Kv. Jóhanna Lilja og Steinunn
Monday, June 16, 2008
Congratulations
Já loksins erum við útskrifuð, gaman gaman. Innilega til hamingju öll sömul. Vonandi skemmtuð þið ykkur jafn vel og ég á laugardaginn. Ég var bara með risa veislu með öllu tilheyrandi og voða gaman. Frábært að Helga og Árni Viðar hafi fengið þessi glæsilegu verðlaun, innilega til hamingju með það bæði tvö :)
Hittumst og sjáumst vonandi sem fyrst, fer eiginlega að koma tími á partý svo hjá okkur, er þa´kki?!!!!
kv. Kiddý ÞROSKAÞJÁLFI (Jibbííí)
Monday, June 9, 2008
Skil á verkefnum
Friday, May 30, 2008
shaky times...
En að öðru, ég er nú þegar búin að fá fyrir ritgerðina en þó ekki inn á Uglu. Hjá mér er ekkert að gerast þar inni, er ég ein um það? Er einhver búin/n að fá einkunnir fyrir hitt? Krakkarnir í skólanum mínum biðu afar spennt og stressuð eftir samræmdu-prófseink. í dag og ég datt í svona smá svipaðan gír og fór að velta þessu fyrir mér.
Allavega, vona að allir hafi það súper :)
Kv
Laufey Ósk
Monday, May 19, 2008
Málþingið okkar góða:)
Já..maður er hálf eirðarlaus þessa dagana...þó svo það sé yfirdrifið nóg að gera:)
Langaði bara að láta þá vita sem ekki vita...að málþingið okkar er komið inn á vefsjónvarpið hjá khí.
http://sjonvarp.khi.is/eldra2008.htm
Jæja...langaði bara svona aðeins að prófa þetta:)
kv. Jóhanna Margrét
Thursday, May 15, 2008
Where art thou?
Æ farin út í sólina. Hræðilegt veður alveg!
Kveðja úr Skerjafirðinum
Laufey Ósk
Tuesday, May 13, 2008
Myndir
kv. Kiddý
Wednesday, May 7, 2008
til umhugsunar
Það hefur enginn bloggað neitt þannig að ég ákvað að koma með smá húmor hérna..... Árni minn, þú hefur líka gott af því að lesa þetta hehe
Leiðarvísir í ástamálum II. fyrir ungar konur ( bæklingur frá árinu 1922 sem á að aðstoða ungar konur við að gera sig "yndislegar" í augum karlmanna)
1. Það sem gerir konuna yndislegasta í augum karlmanna er blíða hennar og yndisþokki, háttprýði hennar í allri framkomu, bros hennar, augnatillit og málrómur, fótatak og allar hreyfingar og sjálfsafneitun. Allt þetta myndar einskonar geislabaug, er sumar konur bera svo sýnilega með sér og hefir göfgandi en um leið töfra-mikil áhrif á karlmennina, vermir hjörtu þeirra og opnar þeim nýja heima og nýtt útsýni yfir lönd
2. Mér finst ástæða til að vara þig sérstaklega við orðskrípum eins og þessum: hvað hann sé "sætur", "pen", "lekker"; þetta eða hitt sé "vemmilegt", "kedelegt", "svart", "brogað"; hvað "fríseringin sé óklæðileg"; hvað þessi kjóll sé "himneskur" og að hrópa "almáttugur" í annari hverri setningu.
3. Þú skallt varast að nota augu þín mikið til þess að hafa áhrif á þá, sem þú þekkir eigi. Augna-daður er ljótt og ósiðsemis-einkenni. Líttu alltaf djarflega og með hreinskilni í augu annara og vertu eigi feimin né undirleit, því að þú hefir engu að bera kinnroða fyrir, ef þú kemur fram með siðprýði. Á götum úti skallt þú líta djarflega framan í karlmenn en þú mátt eigi brosa framan í þá (ef þú þekkir þá eigi) né líta um öxl til að horfa á eftir þeim.
4. það er eins með brosið og augnaráðið, að of mikið má af því gera að brosa, og síbrosandi kona er þreytandi.Þú mátt heldur ekki brosa eða hlæja að öllu, alvarlegu jafnt sem skemtilegu, og eigi máttu brosa framan í hvern mann, sem verður á vegi þínum, og umfram allt forðast hið reykvíkska veiðibros, sem algengt er á vorum dögum.
5. Handtakið hefir mikla þýðingu og getur borið mikinn ávöxt. Mörgu hefi eg gleymt af því, sem á milli okkar fór, þegar við vorum saman, en aldrei gleymi eg þó handtaki hennar.
6. Þú getur með mörgu móti varðveitt fegurð þína, en til "smínksins" máttu aldrei grípa. Lauslætiskonan-sem er litljót-á að hafa einkarétt til að "smínka" sig.
7. Til þess að geta orðið yndisleg í augum karlmanna, verður þú að vanda klæðnað þinn og þrifnað, þvi að óþrifin kona er andstygð siðaðra manna. Þú skal eigi ganga á hælaháum stígvélum; þau skekkja og afskræma líkama þinn. Berðu aldrei fánýta og einskisverða skrautgripi, hvorki hringi né nælur. Baðaðu allan líkama þinn við og við og þvoðu hár þitt að minsta kosti einu sinni í mánuði. Greiddu hár þitt vel og fléttaðu það eigi fast; varastu skaðleg hármeðul og of heit báru-járn ("krullu"-járn)
8. Þær konur, sem eigi tala um annað en kjólasnið, skemtanir og stráka, eru hverjum karlmanni hvimleiðar.
9. Snertu eigi á öllum hlutum, þar sem þú kemur; það er óþarfi.
10. Þú mátt aldrei biðja karlmann að gefa þér sælgæti.
11. Ljósmyndir af þér átt þú eigi að gefa nema frændfólki og bestu vinum. Og eigi átt þú að þiggja ljósmyndir af þeim karlmönnum, sem þú þekkir lítið, nema skyldir þér séu.
12. Eg áminni þig alvarlega um að vera eigi lauslát, ef þú vilt verða hamingjusöm í lífinu og landi þínu og þjóð þinni til gagns og sóma.
13. Þú mátt eigi fara eingöngu eftir fríðleikanum þegar þú velur þér mann. Þótt þér finnist þessi eða hinn "sætur" og "yndæll" og þótt hann sé fínn og fagurmáll, með harðan hatt, gljáskó og gull-gleraugu, þá máttu eigi vegna þess játa bónorði hans. Öll hans mærð og mælgi getur verið eins og sápubóla-ekkert nema litskrúðið.
14. Þá ættir alltaf að nota ofurlítið af góðu ilmvatni í föt þín-minsta kosti sparifötin-en gæta þess, að gera það í hófi. "Hóf er best í hverjum hlut." Einnig er gott að bera góð ilmefni (hárvötn) í hárið við og við og núa því inn í hársvörðinn. Hvorttveggja þetta hefir sín áhrif á karlmennina, því að þeim fellur það illa, að finna eldhúslykt eða fúkkalykt úr fötum þeirrar konu, sem þeir eru með á opinberum stað, t. d. í leikhúsi eða veitingahúsi.
Kveðja, Álfheiður
MSN hjá mér er alfheidurv@hotmail.com
Netfang er alfheidurv@gmail.gom
Ef einhver hefur áhuga :-)
Sunday, May 4, 2008
sæl verið þið öll
Kveðja Helena úr staðnáminu
Thursday, May 1, 2008
Gagnabanki fyrir þroskaþjálfa!
Mjög sniðugt og eitt af því sem ég var að velta fyrir mér afhverju væri ekki til;) Set linkinn hérna til hægri líka.
Steinunn
Myndirnar okkar!
Kv. Jóhanna Lilja
Tuesday, April 29, 2008
Bloggsíðan okkar komin í gagnið :)
Þá er ráðstefnan að baki og þessu námi okkar fer senn að ljúka... Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir samveruna síðastliðna daga, þetta hefur verið alveg frábært í alla staði! Ég vona að þessi síða verði til þess að við getum haldið sambandi og hjálpað hvort öðru í lífi og starfi!
Ég sendi ykkur öllum upplýsingar um notendanafn og lykilorð til þess að geta bloggað á khi netföngin :) Gangi ykkur öllum vel með það sem eftir er og við sjáumst hress 14. júní!
Kær kveðja, Jóhanna Lilja